Um mig

Anna Kristín Halldórsd.

Kennari í fjarkennslu í Borgarholtsskóla, starfsráðgjafi og höfundur að reyna að koma sér á framfæri.

Allskonar um mig

Menntunin

Ég er með meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði, kennsluréttindi á framhaldsskólastigi, starfsréttindi í náms- og starfsráðgjöf og diplóma í margmiðlun.

Vinnan

Ég er búin að skrifa ferðabók um Jakobsstíginn á Spáni og er nú með fjáröflunarherferð á KarolinaFund til að reyna að safna fyrir útgáfu og prent kostnaði.

Frá janúar 2017 hef ég verið að kenna í fjarkennslu hjá Borgarholtsskóla.

Mars 2020 – ágúst 2022 var ég kennsluráðgjafi í rafrænum kennslumálum við þrjá framhaldsskóla: FG, FS og Flensborg. Í því starfi var þessi síða sett upp en hún verður opin áfram þangað til ég er búin að ákveða hvað ég geri með hana.

Áður var ég 12 ár hjá Kennslumiðstöð HÍ. Fyrir 2008 var ég fræðslustjóri hjá Samskipum í átta ár, vann við atvinnuráðgjöf og var með námskeið í atvinnuleit, sjálfsstyrkingu, tímastjórnun, tölvukennslu fyrir byrjendur, uppsetningu á ferilskrám og fleira.


Áhugamálin eru allt sem snýr að margmiðlun, ljósmyndun, kennslu, lestur og bækur og útivera.

Uppáhalds

Youtube síðan mín
Upplýsingar um forrit og fyrirlestrar í kennslu
Ferilskrár og atvinnuviðtöl
Síðan liggur niðri eins og er.

Fjarkennsla
Kenni Uppeldisfræði ýmsa áfanga og Upplýsingatækni.

Hafðu samband

Er alltaf tilbúin að tala um kennslu og kennsluhætti, sérstaklega fjarkennslu og rafræna kennsluhætti. Tel annars ekkert vera mér óviðkomandi er snýr að kennslumálum og er alveg tilbúin að skipta um skoðun ef svo býr undir.

Útgefið:

Handbók fyrir Vinnuklúbbinn í samvinnu við Marín Björk Jónasdóttur.